Heimskautavísindi í skólastofuna
Heim
Hafa samband
Heimskautin
Náttúran
Heimskautaleiðangrar
Heimskautafarar
Vísindamenn
Fróðleikskorn
Grænlandsjökull
Hofsjökull
Ísland heimskautaland?
>
Öskulagakort af Tungnárjökli
Loftslagsbreytingar
Sólheimajökull
Weddel selurinn
Yfirborð sjávar
Verkefni
Vefslóðir
Kveikjan
Vefslóðir til að læra meira um heimskautavísindi og efni tengt þeim.
Alþjóða heimskautastofnunin kemur á framfæri niðurstöðum úr vísindalegum rannsóknum á heimskautunum, upplýsir um loftslagsbreytingar og stuðlar að sjálfbærni í þjóðfélögum.
Á þessum vef er hægt að komast í kynni við fólk sem hefur áhuga á að vinna með heimskautavísindi í skólastarfi með nemendum. Hægt er að skrá sig á vefinn og finna hugmyndir og upplýsingar og fróðleik um heimskautavísindin og hvað er að gerast þar.
Hér er einn af fjórum vefjum sem hefur það markmið að fræða kennara og nemendur um mikilvægi heimskautasvæðanna og hina viðkvæmu náttúru þeirra. Einnig að gera þeim kleift að læra um loftslagsbreytingar frá þessu sjónarhorni.
Á þessum vef er hægt að lesa fréttir og greinar um heimskautasvæðin og mikilvægi þeirra til að skilja hvað er í gangi á jörðinni. Hægt er að lesa sögu jarðarinnar, um lífkerfin og loftslagsbreytingar sem eru í gangi núna.
Hér er myndskeið tekið af vef YouTube sem Adam LeWinter og Jeff Orlowski tóku af jöklulframhlaupi við Illulissat jökulinn á Vestur Grænlandi í maí 2008. Þeir höfðu vaktað jökulinn í 17 daga þegar loks eitthvað gerðist. Hrunið í jöklinum stóð yfir í 75 mínútur og hann hopaði um 1500 m og sporðurinn var 4,5 km breiður. Þykktin á ísnum við sporðinn var um 1000 m og stóðu 100 til 150 m af honum upp úr sjónum.
Vefur sem sýnir loftstrauma heimsins.
Íslenskur fjarnámsvefur um grunnatriði jökla og loftslagsbreytingar. Verkefni fyrir nemendur og leiðbeiningar fyrir kennara.
Hér er hægt að lesa frekar um leiðangra og vísindamenn sem starfa og hafa starfað og heimsótt heimskautasvæðin til að rannsaka þau frekar.
Hvað veldur gróðurhúsaáhrifum - útskýring tekin af vísindavefnum.
Hvað er El Nino - úrskýring tekin af vef Námsgagnastofnunar.
Myndband sem sýnir jökulbreiðuna á Suðurskautinu.