Kveikjan að þessu verkefni var ferð á ráðstefnu í Coimbra í Portúgal í mars 2013 þar sem fjallað var um hvernig hægt væri að koma heimskautavísindum inn í skólastarf og bæta og auka þekkingu nemenda á heimskautunum og kynna þeim þau vísindi og rannsóknir sem þar eru stundaðar. Þar liggur lykillinn að því sem kann að gerast vegna loftslagsbreytinga, því þar eru afleiðingarnar svo augljósar. Fyrir hönd Íslands fóru Kolbrún Svala Hjaltadóttir og Oddur Sigurðsson til að kynna sér þetta viðfangsefni. Að ráðstefnunni stóðu stofnun Alfred Wegener, (AWI), British Antarctic Survey og Háskólinn í Coimbra í Portúgal. Í framhaldi af vinnunni á ráðstefnunni sóttum við um styrk til Hagþenkis, sem er félag höfunda fræðirita og kennslugagna, til að útbúa rafrænt efni fyrir íslenska nemendur og kennara um þessi fræði og fengum við styrk til verksins sumarið 2013.
Stöðugt er verið að bæta við efni á vefinn eftir því sem það berst okkur frá vísindaheiminum.
Stöðugt er verið að bæta við efni á vefinn eftir því sem það berst okkur frá vísindaheiminum.
Hér fyrir neðan eru nokkrar myndir frá Íslandi og Alaska teknar af Oddi Sigurðssyni.