Loftslag er mjög breytilegt og hefur alltaf verið. Stundum hafa þessar breytingar verið ofsafengnar eins og þegar ísöld skellur á á skömmum tíma eða henni linnir nánast í einu vetfangi. Þessar breytingar hafa allar verið af svokölluðum náttúrulegum ástæðum svo sem breytingar á möndulhalla jarðar eða geislun sólar. Nú hefur loftslag breyst mjög ört á undanförnum árum vegna þess að mannkynið hefur mengað lofthjúpinn geysilega með því að brenna kolum, olíu og jarðgasi. Vitað er um margar afleiðingar þessarar mengunar svo sem hækkandi sjávarborð og súrnun sjávar en margt er örugglega ófyrirséð. Vísindamenn keppast nú við að gera sér grein fyrir breytingunum og reyna að finna hvað unnt verði að gera til að forðast slæmar afleiðingar eða minnka þær. (O.Sig.)
Hér fyrir neðan eru greinar um loftslagsbreytingar sem birtar hafa verið á Netinu.
Loftslagsbreytingar af mannavöldum - umræða frá Umhverfisstofnun
Vísindavefurinn - umræða um umhverfismál
Skýrsla vísindanefndar um hnattrænar loftslagsbreytingar og áhrif þeirra á Íslandi frá júní 2008
Halldór Björnsson veðurfræðingur á Veðurstofunni skrifar um áhrif loftslagsbreytingar á Íslandi